23 Oct 2013
October 23, 2013

Kynning hjá Sjóflokk

Það var líf og fjör hjá okkur í björgunarsveitinni í gær. Öllum nýliðum og Unglingadeildarfólki var smalað samann á kynningu hjá flotadeild björgunarfélagsins. Það var byrjað um fimmleitið með því að fara með fyrsta holl, en það voru nýliðarnir sem riðu á vaðið. Margrét Guðbrands og Jón M voru sjósett og haldið út á flóa. Ekki var farið langt en aðeins kíkt út á bauju. Siðan tók unglingadeildin við, krökkunum var skipt í tvo hópa og farið með annan út á sjó á meðan Hjörtur jós úr sínum stóra fróðleiksbrunni fyrir hina. Í stuttu máli má segja að allt hafi gengið vel og allir skemmt sér konunglega, ungir jafnt sem gamlir.

Deila á Facebook