25 ára afmæli
Þann fyrsta janúar 2000 varð Björgunarfélag Akraness formlega til. Sameinuð björgunarsveit úr tveimur sem höfðu verið starfandi á Akranesi. Önnur þeirra, hjálparsveit skáta Akranesi frá því 1983 og svo björgunarsveitin Hjálpin sem hafði fyrst verið stofnuð 1928.
í dag er þessi björgunarsveit, ein af tæplega eitt hundrað björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjörg, ein sú öflugasta með um 60 virka félaga. Sveitin sinnir útköllum um allt land, til lands og sjávar.
Án sinna bakvarða, þeirra sem sinna heimili og börnum, bæta á sig vinnu þegar vinnufélaginn þarf að mæta í útkall og þeirra sem greiða mánaðarlega bakvarðastyrkinn og mæta með öðrum hætti þörf björgunarsveitar fyrir búnað, gæti björgunarsveitin ekki starfað. Til þess að sýna þakklæti okkar fyrir þetta allt langar okkur til þess að bjóða íbúum og velunnurum að kíkja til okkar og skoða aðstöðu og búnað. Að Kalmansvöllum 2 á Akranesi.
