Fiskiskipi komið til aðstoðar

Áhöfn Kristrúnar á Bjargi hélt strax til aðstoðar. Veður var þokkalegt og ölduhæð um 2m. Eftir um klukkutíma siglingu náði Kristrún á Bjargi að skipinu og taug komið á milli skipanna.

Þar sem hluti veiðarfæranna lá utaná stjórnborðs hlið skipsins og ekki hægt að fjarlægja vegna þess að þau voru föst í skrúfunni, lét fiskiskipið mjög illa að stjórn. Sótti mjög á stjórnborða sem skapaði erfiðar aðstæður til dráttar. Þetta 120 tonna skip hefði átt að vera tiltölulega létt í drætti fyrir björgunarskip eins og Kristrúnar á Bjargi en við þessar aðstæður var verkefnið orðið töluvert erfiðara. En gott og öflugt skip og áhafnir á báðum skipum sem kunnu til verka tryggði góða niðurstöðu. Skipin komu til hafnar á Akranesi um kl 16.

Kafarar hófu strax vinnu við að losa veiðarfærinn úr skrúfu fiskiskipsins og eftir um tveggja tíma vinnu hélt fiskiskipið aftur af stað til veiða.
