Félagar í Björgunarfélagi Akraness aðstoða ökumenn og farþega í óviðri.

Upp úr kl. 19:00 barst aðstoðarbeiði til björgunarsveita á Vesturlandi. Mjög hvasst og skafrenningur var orðin á vegkaflanum fyrir Hafnarfjall. Jafnframt var komin mikil hálka sem olli því að bílar lentu útaf og ökumenn treystu sér ekki lengra. Rúta og strætó áttu í vandræðum á vegkaflanum þannig að þörf var á öflugu viðbragði.

Töluverður fjöldi farþega var í þeim ökutækjum sem voru á ferðinni og því var talin ástæða til að boða út öflugt viðbragð.
