Ný heimasíða
Nýlega opnaði aftur heimasíða Björgunarfélags Akraness.
Fyrir nokkrum árum urðum við hjá Björgunarfélagi Akraness fyrir því að heimasíðan okkar var hökkuð. Ekki var um annað að ræða en að smíða nýja frá grunni. Tveir góðir menn hér á Akranesi hlupu undir bagga og lögðu til kerfi ásamt því að sníða heimasíðuna að okkar þörfum. Kunnum við þessum heiðurs mönnum okkar bestu þakkir og erum mjög þakklát því að vera aðstoðuð með þessum hætti í okkar sjálfboðaliðastarfi. Heimasíðunni er ætlað það hlutverk að vera upplýsingasvæði um björgunarsveitina. Einnig að flytja helstu fréttir úr starfi og frá útköllum.
