Nýtt björgunarskip fær nafn

Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Akraness hefur fengið nafn, Kristrún á Bjargi. Þessi öfluga kona, Kristrún Hallgrímsdóttir fæddist á Veiðilæk í Norðurárdal í Borgarfirði 1. október 1833. Flutti á Akranes 12 ára gömul á Akranes, þá munaðarlaus. Eignaðist með manni sínum, Tómasi Erlendssyni 17 börn. Bjuggu þau á Bjargi, bær sem var staðsettur við miðja Laugarbraut á Akranesi dagsins í dag. Var Kristrún ætíð þekkt sem Kristrún á Bjargi. Var í útgerð en er einna þekktust fyrir framlag sitt til samfélagsins vegna mikillar gestrisni og að hafa skotið skjólshúsi yfir sjúklinga sem þörfnuðust læknishjálpar. Var þar með einn af helstu frumkvöðlum þess að sjúkraskýli og seinna sjúkrahús var reist á Akranesi.
Mjög fjölmenn ætt er frá þeim hjónum komin. Fimm af börnum þeirra dóu ung. En átta þeirra eignuðust börn. Öll þessara átta nema eitt voru annað hvort sjómenn eða sjómannskonur. Þannig að tengslin við sjó hafa alltaf verið sterk.

Þegar kom að því að velja nafn á skipið, kom nafn Kristrúnar Hallgrímsdóttur fljótlega til greina. Kona sem samfélagið þekkti fyrir mikla fórnfýsi og sem hafði það oft á orði "að Guð launaði það sem þarf". Hún var fremst í flokki þeirra sem lagði hart að sér til þess að samfélagið á Akranesi á þessum árum næði í gegnum þær hörmungar sem sjávarháski, harðindi og pestur lögðu á það. Það er því mikill heiður fyrir Björgunarfélag Akraness að fá að nota nafn þessarar heiðurskonu á björgunarskipið og að halda uppi hennar merki við að sinna samfélaginu til sjós og lands.