Nýtt björgunarskip fær nafn

Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Akraness hefur fengið nafnið Kristrún á Bjargi. Þessi öfluga kona, Kristrún Hallgrímsdóttir, fæddist á Veiðilæk í Norðurárdal í Borgarfirði 1. október 1833. Hún flutti á Akranes 12 ára gömul, þá munaðarlaus. Eignaðist með manni sínum, Tómasi Erlendssyni, 17 börn. Bjuggu þau á Bjargi sem var staðsett við miðja Laugarbraut á Akranesi dagsins í dag. Kristrún var alltaf þekkt sem Kristrún á Bjargi. Hún bar uppi stórt og mannmargt heimili, skaut skjólshúsi yfir gesti og var í útgerð. Þegar Tómas lést, 1881 stóð Kristrún eftir með stórt heimili og mörg börn í ómegð. Hún sýndi ótrúlegan dugnað, þrautseigju og æðruleysi við að halda heimilinu gangandi þrátt fyrir fátækt og fiskileysi. Kristrún er einna þekktust fyrir framlag sitt til samfélagsins vegna mikillar gestrisni og fyrir að hafa skotið skjólshúsi yfir sjúklinga sem þörfnuðust læknishjálpar. Var þar með einn af helstu frumkvöðlum þess að sjúkraskýli og seinna sjúkrahús var reist á Akranesi. Saga líknandi handa var sýning sem sett var upp á Bygðasafni Akraness og Hvalfjarðarsveitar og fjallaði að hluta til um hennar framlag og sjúkraskýlið á Bjargi.
Mjög fjölmenn ætt er frá þeim hjónum komin. Fimm af börnum þeirra dóu ung. Átta þeirra eignuðust börn. Öll þessara átta nema eitt voru annað hvort sjómenn eða sjómannskonur. Þannig að tengslin við sjó hafa alltaf verið sterk.

Þegar kom að því að velja nafn á skipið, kom nafn Kristrúnar Hallgrímsdóttur fljótlega sterklega til greina. Kona sem samfélagið þekkti fyrir mikla fórnfýsi og hafði oft á orði "að Guð launaði það sem launa þarf". Hún var fremst í flokki þeirra sem lagði hart að sér til þess að samfélagið á Akranesi á þessum árum næði í gegnum þær hörmungar sem sjávarháski, harðindi og pestir lögðu á það. Það er því mikill heiður fyrir Björgunarfélag Akraness að fá að nota nafn þessarar heiðurskonu á björgunarskipið og að halda uppi hennar merki við að sinna samfélaginu til sjós og lands.

Gott samtal var tekið við þau ættmenni sem næst voru okkur í Björgunarfélaginu. Það samtal leiddi til fjölmenns fundar í húsnæði Björgunarfélagsins þar sem góður hópur afkomenda Kristrúnar Hallgrímsdóttur kom og fræddi okkur, félaga björgunarfélagsins um formóður sína. Við það tækifæri var okkur færð mynd af Kristrúnu. Þessi mynd kemur upphaflega af vegg húss sem stóð við núverandi Akratorg og hét þá Skuldartorg. Húsið sem myndin var í, og var í eigu sonar Kristrúnar, Benedikts, hét einmitt Skuld. Frá honum er komin svonefnd Skuldarætt sem er einn leggur afkomenda Kristrúnar Hallgrímsdóttur. Það er skemmtileg tilviljun að skipið sem núna ber nafn Kristrúnar, hét einmitt Skuld.
Björgunarskipið var gert út af norsku björgunarsamtökunum Redningsselskapet, þar sem skipið var í notkun frá 1990-2018. Hét það einmitt Skuld í höfuðið á norsku tryggingafélagi sem gáfu norsku sjóbjörgunarsamtökunum skipið. Þegar það var selt til Björgunarbátasjóðs Vestfjarða á Ísafirði, fékk þar nafnið Gísli Jóns. (Tölulegar upplýsingar um skipið og notkun þess í Noregi).
Formleg vígsla á skipinu verður á Sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní nk.
Framundan er þjálfun áhafna á björgunarskipinu. Það er margt sem þarf að læra. Fumlaus og örugg handtök geta skipt öllu við erfiðar aðstæður þannig að liklegt er að íbúar á Akranesi og inn með Hvalfirði verði töluvert vör við björgunarskipið Kristrúnu á Bjargi næstu vikur.