Fara beint í efni
home

Björgunarskipið Gísli Jóns í heimahöfn á Akranesi

Björgunarfélag Akraness hefur fengið afhent björgunarskipið Gísla Jóns af Björgunarbátasjóði Vestfjarða á Ísafirði. Skipið kom til Ísafjarðar árið 2019 frá Noregi þar sem það hafði verið gert út af Norsku björgunarskipasamtökunum undir nafninu R/S Skuld, í höfuðið á Norsku tryggingafélagi sem hefur stutt dyggilega við samtökin. Undir þeirra merkjum voru 5390 skip aðstoðuð á einn eða annan hátt, 4481 einstaklingur nutu aðstoðar áhafnarinnar og af þeim voru um 64 lífbjarganir að ræða. Tölulegar upplýsingar.

Á myndinni eru þeir Þórður Guðnason varaformaður Björgunarfélags Akraness og Gauti Geirsson formaður Björgunarbátasjóðs Vestfjarða að handsala kaupsamninginn

Á Ísafirði hefur björgunarskipið og áhöfn þess sinnt fjölda útkalla í góðu samstarfi við aðrar björgunareiningar Slysavarnafélagsins Landsbjörg á Vestfjörðum. Aðstæður á svæðinu eru erfiðar og mörg af erfiðustu björgunarverkefnum sem þekkt eru á Íslandi hafa orðið á þessu svæði. Á Vestfjörðum er mjög mikil sjósókn, veður válynd og því mikilvægt að allt björgunarviðbragð sé eins og best verður á kosið. Á sumrin er mikil ásókn ferðamanna inn á svæðið og hluti þess, sérlega Hornstrandir er ómögulegt að koma björgunarliði að nema af sjó eða úr lofti. Björgunarskipakostur á Vestfjörðum er því mjög mikilvægur og þar hefur Gísli Jóns farið fremstur í flokki annarra öflugra skipa. Þar sem nýtt skip er nú komið til Ísafjarðar, Guðmundur í Tungu, þá var Gísli Jóns laus til nýrra verkefna.

Eins og við var að búast hefur verið einstaklega ánægjulegt að vinna að þessum kaupum með þeim í Björgunarbátasjóði Vestfjarða þar sem Gauti Geirsson fer fremstur í flokki. "Okkur fannst mjög mikilvægt að þetta öfluga skip, Gísli Jóns, sem hefur verið farsælt í starfi fyrir hjá þeim og þar áður í Noregi, fengi að halda áfram að nýtast björgunarstarfi á sjó við Ísland". Móttökurnar hér fyrir vestan hafa verið frábærar í alla staði.

Í undirbúningi að þessum kaupum hefur Björgunarfélag Akraness leitað leiða til þess að fjármagna kaupin og einnig aukin rekstrarkostnað. Þar sem félagið er ekki inn í björgunarskipa hópi Slysavarnafélagsins Landsbjörg og nýtur þar með ekki þess ríkisstuðnings sem þau skip njóta, er það fyrst og fremst nærsamfélag Björgunarfélagsins sem styður vel við þetta verkefni. Félag sjómanna á Akranesi ásamt sveitarfélögunum, Akranesbæ og Hvalfjarðarsveit hafa nú þegar samþykkt að styðja við verkefnið. Einnig hafa fyrirtæki og einstaklingar lagt verkefninu lið. Meira þarf samt til og áfram verður haldið með að afla fjár til kaupanna og rekstursins. Einn mikilvægasti liðurinn í þessaeri söfnun er framlag íbúa til reksturs Björgunarfélags Akraness í formi skilaskyldra umbúða. Sú fjáröflun er okkur mjög mikilvæg og auðvelt fyrir íbúa að rétta okkur hjálparhönd þar.

Þeir sem vilja styrkja kaupin með beinum framlögum geta lagt inn á reikning Björgunarfélags Akraness:

Banki 0330-26-1800Kennitala Björgunarfélags akraness: 470100-3030

Dósagámur fyrir utan aðstöðu Björgunarfélags Akraness að Kalmansvöllum

Framundan er svo menntun og þjálfun áhafna á nýtt skip. Annað og stærra skip krefst mikillar vinnu við að tileinka sér stjórntök, þekkja vélbúnað og skilja hvernig skipið bregst við hinum ýmsu aðstæðum. Björgunarfélag Akraness býr yfir miklum mannauði. Í dag eru um 10 skipstjórar í félaginu sem hafa full réttindi til þess að stjórna skipi á stærð við Gísla Jóns. Einnig eru fimm félagar í námi til skipstjórnarréttinda. Einnig þarf réttindafólk til þess að sinna vélbúnaði um borð í skipinu. Þegar sá hópur sem er tilbúinn til þess að manna skipið, hefur lokið þjálfun í notkun búnaðarins verða um 10 manns með þau réttindi sem þurfa til þess að sinna vélgæslu um borð. Svo er stór hópur sem er tilbúinn til þess að manna aðrar stöður. Það er töluverð eftirvænting hjá félögum í Björgunarfélagi Akraness yfir komu skipsins og væntanlega verður eitthvað meiri umferð um Akraneshöfn á vegum Björgunarfélags Akraness næstu misseri.

Við eigum líka eftir að velja skipinu nýtt nafn. Hugmyndir um það eru í vinnslu og niðurstaðan úr þeirri vinnu verður birt hér á vefnum.

Hér eru svo fleiri myndir úr þjálfun áhafnar og heimferðinni.

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.