Áhöfn skútu í neyð

Í gær, fimmtudaginn 22. október, um kl. 18:00, barst Björgunarfélagi Akraness aðstoðarbeiðni vegna skútu í neyð 12 sjómílur vestur af Akranesi.
Bæði skip félagsins héldu til aðstoðar. Margrét Guðbrandsdóttir hafði verið við æfingar með áhöfn og brást hún strax við og hélt til móts við skútuna. En þar sem skútan var yfir 20 metra löng þurfti stærra skip til að sækja skútuna og áhöfn hennar. Skútan var að koma frá Scoreby sundi á Grænlandi þegar vélarbilun varð eftir 11 daga siglingu. Hafdís SK kom skútunni fyrst til aðstoðar en svo tók björgunarskipið Kristrún á Bjargi skútuna í tog og dró hana inn til Hafnarfjarðar.
Verkefnið gekk vel. Skipin voru komin í Hafnarfjarðarhöfn um kl 22:00 og Kristrún á Bjargi var komin í heimahöfn á Akranesi um kl 24:00.

Annað starf Björgunarfélagsins er komið á fulla ferð eftir tiltölulega rólegt sumar. Nýliðaþjálfun í gangi og góð mæting í Unglingadeildina Arnes. Svo hefur Neyðarkallinn 2026 verið kynntur til sögunar. Sá sem aflar fjár. Sala á honum hefst 4. nóvember og stendur til 8. nóvember.




