Fara beint í efni
home

Félagar í Björgunarfélagi Akraness aðstoða ökumenn og farþega í óviðri.

Mikill vindur og skafrenningur höfðu myndast á veginum og auk þess var mikil hálka sem olli því að ökutæki runnu út af og ökumenn treystu sér ekki lengra.

Rúta og strætó lentu einnig í vandræðum á þessum kafla, sem kallaði á umfangsmikil viðbrögð. Þar sem töluverður fjöldi farþega var í ökutækjunum var ákveðið að boða út allar bjargir á svæðinu.

Ferðafólki var boðið að leita skjóls á gisti- og veitingastaðnum Laxárbakka, þar sem það mun dvelja þar til veðrið skánar. Einn farþegi var fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar.

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.