Annríki hjá Björgunarfélagi Akraness – fjögur útköll á tveimur vikum.

Gönguleiðin að Glym er fjölfarin yfir sumartímann og sækir mikill fjöldi ferðamanna svæðið heim. Þrjú útköll á sama svæði á aðeins tveimur vikum undirstrika hversu mikilvægt er að göngufólk sé vel undirbúið, klætt eftir aðstæðum og með viðeigandi búnað meðferðis. Björgunarfélag Akraness þekkir svæðið við Glym vel og hefur í gegnum tíðina sinnt fjölmörgum verkefnum þar. Útköll á svæðinu geta verið krefjandi enda þarf oft að flytja búnað og björgunarfólk um brattar og erfiðar gönguleiðir.

Fjórða útkallið á tímabilinu var á sjó, en sjóbjörgun er einnig mikilvægur þáttur í starfsemi Björgunarfélags Akraness. Starfssvæði félagsins á sjó nær frá Hvalfjarðarbotni og vestur að Arnarstapa og skipaumferð á svæðinu er mikil. Fjögur útköll á tveimur vikum sýna vel fjölbreytileikann í verkefnum félagsins. Félagar þurfa að vera tilbúnir til að bregðast við með litlum fyrirvara, hvort sem kallið berst vegna slyss á fjölfarinni gönguleið eða aðstoðar á sjó. Öll þessi vinna er unnin af sjálfboðaliðum sem gefa tíma sinn til að tryggja öryggi annarra. Björgunarfélag Akraness vill því jafnframt minna fólk á að sýna aðgát, fylgjast með aðstæðum og vera vel undirbúið áður en lagt er af stað – hvort sem ferðinni er heitið til fjalla eða út á sjó



