Sjóflokkur

Sjóflokkur sér um tæki sem eru notuð á sjó. Flokkurinn er vel út búinn enda er Akranes umlukið sjó á tvo vegu. Mikil skipaumferð er fyrir utan Akranes og ekki er óalgengt á virkum degi í miðri strandveiði að yfir eitt hundrað sjóför séu á ferðinni nálægt Akranesi skipaumferð inn Hvalfjörð, strandveiðisjómenn á leið að og frá landi, fjöldi hvalaskoðunarskipa, skemmtiferðaskip og svo fólk á kajökum, skútum, í sjósundi við Langasand og á minni skipum
Margrét Guðbrandsdóttir
Skipið er af tegundinni Atlantic 85. Smíðað af RNLI í Bretlandi. Björgunarfélagið eignaðist skipið haustið 2023 og tók það svo í notkun í maí 2024 allt ný yfirfarið. Full áhöfn eru fjórir. Skipið getur gengið á 40 sjómílna hraða við bestu aðstæður sem tryggir mjög skjótt viðbragð.
Myndir
Jón Gunnlaugsson
Skipið er ágætlega rúmgott og getur tekið 10-20 farþega í neyð. Einnig er skipið öflugt til dráttar og lætur vel að stjórn með tveimur aðskildum vélum og skrúfum þeim tengdum.
Myndir
Safe Runner sjóskíði
Safe Runner sjóskíði eru knúin áfram með jett drifi sem leyfir þeim að sigla á grunnsævi. Þau henta sérlega vel til að sigla á milli skerja og kletta. Eiga auðvelt með að lenda í óaðgengilegum fjörum. Nýtast vel til leitar við klettótta strandlengju. Þau eru útbúin með AIS tækjum sem tryggir að þau sjást vel aá radar.

Gúmbátar
Sjóflokkurinn hefur yfir að ráða tveimur gúmbátum. Það er mikilvægt að hafa yfir að ráða gúmbátum sem auðvelt er að sjósetja við erfiðar aðstæður. Nýtast einnig sérlega vel á stöðum eins og á Grunnafriði og öllum þeim vötnum sem eru í nágrenninu. Stærri gúmbáturinn ber nafn Jóns M Guðjónssonar sem var einn aðal frumkvöðull björgunarstarfs á Akranesi. Sá minni ber nafn Axels Sveinbjörnssonar sem átti og rak Axelsbúð til margra ára og var einnig formaður björgunarsveitarinnar Hjálpar til fjölda ára.

Til þess að ná hæfni og ölast réttindi til þess að mega sigla skipum félasgsins sem eru lengri en 6 metrar þarf að sitja fjölmörg námskeið og safna reynslu við notkun á tækjunum. Þau námskeið sem þarf að sækja eru eftirfarandi:
Öryggisfræðsla smábáta Slysavarnaskóli sjómanna eins dags námskeið
Vélstjórn björgunarskipa (eftir er að gefa út endanlega námslýsingu)
REGLUGERÐ um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum.
Ýmiss skjöl






