Fara beint í efni
home

Unglingadeildin Arnes

Unglingadeildin Arnes var stofnuð árið 2007. Deildin varð strax stór partur af björgunarfélagi Akraness. Það mæta um 20-30 unglingar í 9. og 10. bekk á fundi einu sinni í viku. Starfið er opið öllum á þessum aldri sem koma frá Akranesi (Brekkubæjarskóla og Grundaskóla) eða Hvalfjarðarsveit (Heiðarskóla).


Á fundunum fá krakkarnir að snerta á ýmsu tengt björgunarstörfum. Þar má nefna almenna útivist, spottavinnu, fyrstu hjálp, rötun, félagsfærni, samvinnu og svo mætti lengi telja. Hjá Björgunarfélagi Akraness starfa alla jafna 4-5 umsjónarmenn sem skipuleggja metnaðarfullt starf yfir árið. Þá er einnig farið í styttri og lengri ferðir yfir veturinn sem vekja alltaf mikla lukku.


Metnaðarfullt starf unglingadeildarinnar á ekki bara við um Akranes heldur um land allt og góð tengsl eru á milli eininga. Haldið er landsþing í upphaf hvers starfsárs þar sem umsjónarmenn sækja fundi og fræðslu til að geta boðið upp á sem besta umhverfið fyrir krakkana sem til okkar koma. Landsbjörg ræður til sín tengilið við unglingadeildir, unglingaráð og stjórnarstarf sérsniðið í kringum viðburði og þarfir unglingadeildanna.

Á síðustu árum hefur verið farið í skýra stefnumótun og regluverk er varðar unglingadeildarstarf björgunarsveitanna og erum við í Björgunarfélagi Akraness stolt að hafa átt tengilið í þeirri vinnu. Hápunktur ársins er síðan landsmót eða landshlutamót þar sem unglingadeildir hittast að sumri til, tjalda saman og eiga góðar stundir í leik og gleði.

Það ættu allir unglingar að geta fundið eitthvað við sitt hæfi innan raða björgunarsveitarinnar. Við fögnum fjölbreytileikanum og tökum öllum sem hafa áhuga opnun örmum.

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.