03 Jan 2014
January 3, 2014

Gjöf frá Sjóbaðsfélagi Akraness

gjöf frá sjóbaðsfélaginu

Þór Bínó tekur við gjöfinni frá Ingþór formanni

Hérna kemur smá seinbúin frétt. Þann 9 nóvember síðastliðinn hélt Sjóðbaðsfélag Akraness aðalfund. Á þeim fundi var Björgunarfélagi Akraness afhent vegleg gjöf.
Sjóbaðsfélagið færði okkur þurrgalla, björgunarvesti, vettlinga og skó.
Sjóbaðsfélagið og Björgunarfélagið hafa átt ljómandi gott samstarf síðustu misseri sem hefur að mestu leit falist í því að björgunarfélagið hefur skaffað öryggisbát þegar sundmenn hafa gert sér dagamun og synt lengri vegalengdir. Það hefur verið afskaplega ánægjulegur tími að sigla með þessum jöxlum sem steypa sér í sjóinn og láta líta út fyrir að það sé hressandi.
Björgunarfélagið þakkar innilega fyrir þessa höfðinlegu gjöf og hlakkar til samstarfs á komandi misserum

Deila á Facebook